STERKT ÓNÆMISKERFI - GRUNNUR AÐ ÁRANGRI ÍÞRÓTTAMANNA
Höfundur: Geir Gunnar Markússon, næringarfræðingur MSc.
Af hverju þú veikist eftir strangar æfingar, keppnir og flugferðir – og
hvernig Unbroken getur hjálpað
Þegar æfingaálag eykst, keppnistímabilið er í hámarki og árstíðarskipti verða (sérstaklega á vorin) er ónæmiskerfið oft það fyrsta sem gefur eftir.
Íþróttafólk þekkir vel harðsperrur og þreytu en færri gera sér grein fyrir því að mjög erfiðar æfingar geta tímabundið bælt starfsemi ónæmiskerfisins. Streituhormón hækka, bólgusvörun eykst og í nokkrar klukkustundir eftir erfiða æfingu getur líkaminn verið viðkvæmari fyrir algengum pestum eins og kvefi og flensu. Ef við bætum við löngum ferðalögum, fjölmennum viðburðum, svefntruflunum eða flugi getur áhættan á að grípa þessar pestir aukist enn frekar.
Hvenær er íþróttafólk í mestri hættu á kvefi og flensu?
Álagið á ónæmiskerfið nær oft hámarki í nokkrum fyrirsjáanlegum aðstæðum:
-
eftir mjög erfiðar eða langar æfingar
-
á tímabilum með miklu æfingaálagi
-
í keppnum
-
við árstíðabreytingar, sérstaklega á vorin
-
á ferðadögum – sérstaklega þegar flogið er
Flug er oft vanmetið sem álagsþáttur. Þurrt loft er í farþegarýminu, aukin snerting við fólk og breytingar á svefni og daglegri rútínu setja líkamann undir aukið álag. Algengt er að íþróttafólk veikist stuttu eftir ferðalög, sérstaklega þegar æfingaálag er mikið. En það er hægt að minnka líkurnar á þessum hvimleiðu veikindum með því að nýta sér Unbroken sem mikilvægan og fyrirbyggjandi þátt í sterku ónæmiskerfi. Þetta eru margir íþróttamenn nú þegar að nýta sér.
Sink og selen eru mikilvæg fyrir öflugt ónæmiskerfi
Tvö steinefni eru sérstaklega mikilvæg fyrir ónæmisvarnir líkamans, en það eru sink og selen.
Sink:
-
styður starfsemi ónæmisfrumna
-
tekur þátt í samskiptum milli ónæmisfrumna
-
gegnir lykilhlutverki í eðlilegu ónæmissvari
Selen:
-
styður andoxunarkerfi líkamans
-
ver frumur gegn oxunarálagi
-
sérstaklega mikilvægt eftir erfiðar æfingar þegar oxunarálag eykst
Unbroken styrkir ónæmiskerfið með háu magni sinks og selens úr náttúrulegu og niðurbrotnu laxapróteini (salmon protein hydrolysate).
Hver Unbroken tafla veitir:
-
35,8% af ráðlögðum dagskammti sinks
-
14,1% af ráðlögðum dagskammti selens
í næringarþéttu formi sem nýtist vel í líkamanum.
B12-vítamín – Öflugur verndari ónæmiskerfisins
B12-vítamín (kóbalamín) gegnir mikilvægu hlutverki í eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins.
Það:
-
tekur þátt í DNA myndun
-
styður frumuskiptingu
-
er nauðsynlegt fyrir efnaskipti ónæmisfrumna
Hver Unbroken tafla veitir 60% af ráðlögðum dagskammti B12 vítamíns.
Reynslusaga afreksíþróttamanns: Færri veikindadagar þrátt fyrir mikið æfingaálag og ferðalög

Við kynnum Lars van Uum, sem er markaðsstjóri hjá Trek Benelux, keppnishjólreiðamaður og mikill talsmaður góðrar endurheimtar.
Unbroken er fastur hluti af hans rútínu svo hann geti æft af kappi og mætt tilbúinn í næstu áskorun.
„Ég byrjaði að nota Unbroken í lok síðasta árs, bæði fyrir hjólreiðarnar og styrktarþjálfunina. Venjulega var ég með mikil eymsli í fótunum eftir styrktaræfingar en þegar ég tók tvær töflur eftir æfingu hurfu eymslin að mestu leyti. Það var í fyrsta skipti í mörg ár sem ég fann ekki fyrir eymslum daginn eftir. Það sem ég tók hvað mest eftir voru áhrifin á heilsuna almennt. Þegar æfingaálag og ferðalög voru mikil veiktist ég oft en síðan ég byrjaði að nota Unbroken hef ég ekki orðið veikur. Jafnvel á mjög krefjandi æfingatímabili á Spáni með um 20 klukkustundir af æfingum á viku hélt ég góðri heilsu og fann að ég varð sterkari með hverri æfingu sem leið.“
Auðvelt að taka með sér – Styður við endurheimt og ónæmi ALLTAF og ALLSTAÐAR
Sumar aðferðir og fæðubótarefni sem eiga að styrkja ónæmiskerfið mistakast einfaldlega vegna þess að þær eru óþægilegar eða of flóknar í notkun.
Unbroken er hins vegar:
-
auðvelt að taka með sér
-
auðvelt í notkun
-
ekkert próteinduft eða hristara sem þarf að nota
Þú getur haft Unbroken:
-
í æfingatöskunni
-
í ferðatöskunni
-
í handfarangri
Bættu einfaldlega töflu út í vatn hvar sem þú ert.
Þannig getur þú stutt við endurheimt og ónæmiskerfi:
-
eftir æfingar
-
milli keppnisdaga
-
á ferðalögum
án þess að breyta daglegri rútínu þinni eða plönum.
Öflugt ónæmiskerfi er grunnur frammistöðu
Þú nærð ekki stöðugleika í æfingum ef þú veikist oft. Þú aðlagast ekki auknu æfingaálagi vel ef endurheimtin er ófullnægjandi.
Unbroken var hannað fyrir RAUNTÍMA ENDURHEIMT – Real Time Recovery, en endurheimt felur einnig í sér sterkt ónæmiskerfi – sérstaklega á tímabilum með miklu æfingaálagi, á keppnistímabilum, á vorin og þegar ferðast er mikið.
Með niðurbrotnum lífsnauðsynlegum amínósýrum fyrir vöðvaendurheimt, sinki, selen og B12-vítamíni fyrir sterkara ónæmiskerfi, hjálpar Unbroken þér að vera tilbúinn fyrir næstu áskorun.
Æfðu af krafti.
Ferðastu skynsamlega.
Stuðlaðu að heilbrigði.
Styrktu ónæmiskerfið.
Fáðu þér Unbroken.