Veldu Unbroken sem hentar þér

Handhæg næring fyrir endurheimt og almenna vellíðan.
Þín endurheimt byrjar hér
Líkaminn reiðir sig á amínósýrur til að viðhalda, gera við og endurbyggja vöðva alla ævi. Unbroken inniheldur 25 amínósýrur í frjálsu formi, þar af 9 lífsnauðsynlegar amínósýrurnar sem líkaminn framleiðir ekki sjálfur.
Hvort sem þú stundar íþróttir, hreyfir þig reglulega, vilt stuðla að heilbrigðri öldrun eða ert að ná þér eftir meiðsli, veitir Unbroken markvissa næringu með amínósýrum sem styðja við líkamann á mismunandi æviskeiðum og við ólíkar þarfir og álag.
Einfalt í notkun. Hröð upptaka.
Unbroken í þína daglegu rútínu
Endurheimt getur verið mismunandi.
Kynntu þér vörur, ráð og venjur sem henta þínu daglega lífi.
Sérfræðingar treysta því. Íþróttafólk velur það.



Markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar 2026
Ég fór að nota Unbroken markvisst í vor og fann strax gríðarlegan mun á allri endurheimt, ég er fyrr að ná mér eftir leiki og erfiðar æfingar, sef betur og mæli með fyrir alla.
Leikmaður Kristianstad og íslenska landsliðsins
Ég byrjaði að nota Unbroken af því að ég fann fyrir mikilli vöðvaþreytu eftir æfingar og leiki og það var stundum erfitt að komast í gegnum heilu æfingarnar. Eftir að ég byrjaði að nota Unbroken hef ég ekki misst úr æfingu eða leik og mér finnst það hjálpa mér gríðarlega mikið við endurheimt og sérstaklega þreytta vöðva.
Atvinnukylfingur
Ég byrjaði að nota Unbroken á EM 2025 og hef notað það síðan. Endurheimt skiptir gríðarlega miklu máli til að vera tilbúinn fyrir næsta dag og með Unbroken jafna ég mig hraðar milli hringja og æfinga. Unbroken er náttúruleg orka og endurheimt sem ég mæli með fyrir alla.
Real Time Recovery
Hannað til að frásogast hratt
Flest fæðubótarefni byrja að virka eftir
meltingu. Unbroken er öðruvísi. Það er framleitt úr amínósýrum á frjálsu formi úr ferskum norskum laxi, þannig að líkaminn frásogar þær strax. Endurheimt hefst á mínútum, ekki klukkustundum.
Vottað af Informed Sport®:
Hver framleiðslulota er prófuð fyrir efnum sem eru bönnuð í íþróttum. Þannig getur íþróttafólk og fólk í hreyfingu treyst því sem það setur í líkamann.
25
Amínósýrur í frjálsu formi
Þar á meðal allar 9 lífsnauðsynlegu amínósýrurnar sem líkaminn framleiðir ekki sjálfur.
96%
Af ráðlögðum dagskammti af vítamín B12
Ríkt magn af sink og selen sem styrkir ónæmiskerfið.

Real Time Recovery
- 25 amínósýrur í frjálsu formi
- Kollagenpeptíð
- B12-vítamín
- Sink og selen
- 10 töflur í stauk
Algengar spurningar
Hvað er Unbroken?
Unbroken er ný nálgun á endurheimt. Varan er unnin úr ferskum norskum laxi og inniheldur frjálsar amínósýrur og stutt peptíð sem frásogast hratt og styðja við vöðvana í kringum æfingar.
Þú þarft ekki að bíða þar til æfingunni er lokið. Þú getur byrjað fyrir æfingu, haldið áfram á meðan á henni stendur og tekið líka eftir hana. Þannig færðu vöðvanæringu í litlu og léttu formi, án þess að meltingin beri sama álag og af hefðbundnu próteini.
Hvað inniheldur Unbroken?
Hver tafla inniheldur 1.500 mg af vatnsrofnu norsku laxapróteini. 25 amínósýrur í frjálsu formi, þar á meðal allar níu lífsnauðsynlegu amínósýrurnar (EAA).
Í töflunni eru einnig kollagenpeptíð, B12-vítamín, sink og selen, sem stuðla að orkumyndandi efnaskiptum og eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. Engin gerviefni. Ekkert koffín. Aðeins 17 hitaeiningar í hverri töflu.
Hvernig á ég að taka Unbroken?
Settu 1-2 töflur í ískalt vatn. Því meira vatn, því minna bragð.
Því fyrr sem þú byrjar, því fyrr hefst endurheimtin. Ef þú ert barnshafandi, eða með barn á brjósti skaltu fyrst ráðfæra þig við lækni.
Er Unbroken bara fyrir íþróttafólk?
Nei. Unbroken er ætlað öllum sem þurfa á endurheimt að halda, ekki aðeins íþróttafólki. Hvort sem um er að ræða krefjandi vinnudag, langan hlaupatúr, annasama viku eða álag daglegs lífs geta vöðvarnir og líkaminn notið sama stuðnings. Endurheimt er ekki eingöngu fyrir atvinnuíþróttafólk.











