Vísindi og rannsóknir

Náttúran skapaði það. Rannsóknir staðfesta það.

Unbroken er unnið úr ferskum norskum laxi með einstöku vatnsrofsferli. Ensím umbreyta próteinunum í amínósýrur á frjálsu formi og stutt peptíð áður en þú neytir þeirra.
Næringarefnin eru þannig samsett að þau séu fljótt aðgengileg líkamanum og krefjist lítillar meltingar. Jafnframt hefurðu svigrúm til að velja hvenær þú neytir þeirra.
Rannsóknir á Unbroken, amínósýrunæringu, vatnsrofnum próteinum og endurheimt í íþróttum hjálpa til við að skýra hvers vegna þetta skiptir máli.

Hér kynnist þú:

Vísindin

Hvernig náttúrulegt ensímferli Unbroken myndar amínósýrur í frjálsu formi og stutt peptíð.

Hratt aðgengi að næringu

Hvers vegna mólþungi, vatnsrof og amínósýrur í frjálsu formi stuðla að því að næringarefni verði fyrr aðgengileg líkamanum.

Niðurstöður rannsókna

Rannsóknir á fólki þar sem skoðaður er flutningur amínósýra, frásog og frammistaða í þolíþróttum.

Real Time Recovery

Hvers vegna tímasetning næringarinntöku getur hjálpað til við að styðja endurheimt, frammistöðu og undirbúning fyrir það næsta.

Náttúran vinnur verkið

Hvað gerir Unbroken einstakt

Ferskur norskur lax

Unbroken tekur ferskt heilt prótein úr laxi (löng keðja af amínósýrum þ.e. peptíð sem hefur háa sameindarþyngd.)

Náttúrulega vatnsrofið

Notuð eru náttúrulegt ensím laxsins til að brjóta niður próteinsameindirnar þ.e. við líkjum eftir eðlilegri meltingu mannsins.

Hröð upptaka

Niðurstaða: 100% vatnsrofið prótein og 25 amínósýrur í frjálsu formi, m.am 9EAA, kreatín AA, kollagen AA.
Líkaminn eyðir litlum sem engum tíma og orku í meltingu og því hefst virknin einungis nokkrum mínútum eftir inntöku.

Mikið lífaðgengi

Þar sem Unbroken er þegar brotið niður í amínósýrur í frjálsu formi og stutt peptíð verða næringarefnin aðgengileg mun fyrr en úr hefðbundnum próteingjöfum.

Þess vegna má nota Unbroken fyrir hreyfingu, á meðan á henni stendur eða eftir hana sem hluta af endurheimt.

Hefðbundið prótein

Hreyfing → Inntaka próteina → Melting → Amínósýrur → Endurheimt

Unbroken

Unbroken → Amínósýrur aðgengilegar → Hreyfing → Endurheimt strax

Hvers vegna mólþungi skiptir máli

Smærri sameindir. Minni melting. Hraðara aðgengi.

Hefðbundin prótein í fæðu eru gerð úr löngum próteingeðjum. Áður en amínósýrur þeirra verða aðgengilegar líkamanum þarf fyrst að melta próteinin og brjóta þau niður í smærri peptíð og amínósýrur – ferli sem tekur tíma.

Unbroken hefur þegar unnið stóran hluta þeirrar vinnu.

Með náttúrulegu ensímferli okkar er laxapróteinið brotið niður í yfir 60% amínósýrur í frjálsu formi og 40% stutt tví- og þrípeptíð, með einstaklega lágan meðalmólþunga, aðeins 374 Dalton.

Þar sem næringarefnin eru þegar á smáu og aðgengilegu formi krefjast þau lágmarks meltingar – og amínósýrurnar verða fljótt aðgengilegar þegar líkaminn þarf á þeim að halda.

Hvað þýðir það fyrir þig:

✓ Minni harðsperrur
✓ Hraðari endurheimt
✓ Styður við heilbrigði og viðhald vöðva
✓ Tilbúið fyrir, á meðan eða eftir hreyfingu

Endurheimt þegar þú þarft hvað mest á henni að halda.

Næring á réttum tíma

Endurheimtin hefst áður en þú leggur af stað

Hefðbundin endurheimtarnæring snýst um það sem þú neytir eftir æfingu. En af hverju að bíða þar til æfingunni lýkur?

Æfingar reyna á vöðvana frá fyrstu stundu. Til að næringin styðji við vöðvana þurfa amínósýrurnar að vera aðgengilegar á réttum tíma

Unbroken veitir 25 amínósýrur í frjálsu formi sem krefjast lágmarks meltingar og eru því fljótt aðgengileg líkamanum.

Rannsóknir hafa sýnt að neysla lífsnauðsynlegra amínósýra í frjálsu formi fyrir æfingu getur aukið flutning amínósýra til vöðva sem eru að vinna, samanborið við neyslu eftir æfingu. 

Af hverju að bíða með endurheimtina þar til æfinging er búin?

✓ Fáðu amínósýrur sem eru þegar aðgengilegar
✓ Styddu við vöðvana á meðan þú hreyfir þig
✓ Hjálpar til við að draga úr harðsperrum
✓ Styður við hraðari endurheimt

Taktu Unbroken áður en þú byrjar. Endurheimtin þarf ekki að bíða þar til æfingunni lýkur.

Að gera amínósýrur aðgengilegar fyrir hreyfingu hjálpar til við að styðja endurheimt vöðva, minni harðsperrur og betri undirbúning fyrir næstu æfingu.

Helstu niðurstöður rannsókna

Rannsókn: Mikilvægi amínósýra fyrir æfingu

Rannsóknir hafa sýnt að neysla lífsnauðsynlegra amínósýra á frjálsu formi fyrir æfingu getur aukið flutning amínósýra til vöðvavefs allt að þrefalt samanborið við neyslu amínósýra í hvíld.

Helsta niðurstaða:
Allt að 3× meiri flutningur amínósýra til vöðvavefs þegar lífsnauðsynlegra amínósýra á frjálsu formi var neytt fyrir æfingu.

Hvers vegna þetta skiptir máli:
Niðurbrot vöðva hefst strax á fyrstu mínútum æfingar.

Með því að gera lífsnauðsynlegar amínósýrur aðgengilegar áður en hreyfing hefst hefur líkaminn aðgang að mikilvægum byggingareiningum sem þarf til að styðja við próteinmyndun í vöðvum og viðgerð á meðan æfingin stendur enn yfir.

Þetta getur hjálpað til við að styðja endurheimt, draga úr harðsperrum og bæta undirbúning fyrir næstu æfingu.

Heimild:
Tipton KD, Rasmussen BB, Miller SL, et al. Timing of amino acid-carbohydrate ingestion alters anabolic response of muscle to resistance exercise. American Journal of Physiology-Endocrinology and Metabolism. 2001;281(2). DOI: 10.1152/ajpendo.2001.281.2.E197.

Rannsókn: Amínósýrur aðgengilegar fyrr en með mysupróteini

Hefðbundin prótein þarf fyrst að melta áður en amínósýrurnar verða aðgengilegar líkamanum. Unbroken er fullvatnsrofið og veitir amínósýrur á frjálsu formi og stutt peptíð sem krefjast lítillar meltingar.

Í rannsókn á frásogi hjá fólki, sem Norwegian School of Sport Sciences stóð að, var fullvatnsrofið laxaprótein Unbroken borið saman við mysupróteinþykkni (WPC-80) og vatnsrofið mysuprótein.

Unbroken leiddi til hraðari hækkunar á styrk amínósýra í blóðrásinni og styrkurinn náði hámarki um 23 mínútum fyrr en með mysupróteini.

Munurinn liggur í því hversu mikið próteinin eru vatnsrofin. Unbroken er fullvatnsrofið, en í rannsókninni voru notuð mysuprótein sem voru heil eða aðeins vatnsrofin að hluta. Þess vegna eru amínósýrurnar í Unbroken fljótt aðgengilegar þegar tímasetningin skiptir máli – fyrir hreyfingu, á meðan á henni stendur eða eftir hana.

Fullvatnsrofið. Fljótt aðgengilegt. Real Time Recovery.

Rannsókn á frásogi hjá fólki, framkvæmd við Norwegian School of Sport Sciences í Ósló í Noregi. Rannsóknarstjóri: Truls Raastad prófessor.

Rannsókn: Endurheimt sem styður við úthald

Lengri vegalengd. Meiri hraði. Lægri púls. Minni harðsperrur.

Maraþonhlauparar sem stunda keppni og tóku Unbroken á krefjandi 60 daga æfingatímabili sýndu framfarir í úthaldi, hlaupagetu og endurheimt samanborið við upphafsmælingar og þá sem fengu lyfleysu.

Endurheimt á sér ekki stað eftir eina æfingu – hún á sér stað á milli allra æfinga. Árangursrík endurheimt getur hjálpað þolíþróttafólki að æfa reglulega, vera tilbúið fyrir næstu æfingu og ná árangri til lengri tíma.

Yfirlit rannsóknar

Í slembiraðaðri, tvíblindri rannsókn með samanburði við lyfleysu fylgdu maraþonhlauparar sem stunda keppni og bjuggu sig undir New York-maraþonið krefjandi 60 daga æfingaáætlun. Hún fól í sér:

✓ 31–40 km hlaup þrisvar í viku
✓ Viðbótarþolæfingar
✓ Reglulegar þrek- og styrktaræfingar

Þátttakendur fengu annaðhvort Unbroken eða lyfleysu og fylgst var með þeim allt æfingatímabilið.

Niðurstöður rannsóknar

Samanborið við upphafsmælingar og þá sem fengu lyfleysu sýndi íþróttafólkið sem tók Unbroken:

✓ Meiri hlaupahraða
✓ Lægri hvíldarpúls
✓ Lengri vegalengd í úthaldsprófi
✓ Aukinn vöðvastyrk
✓ Minni harðsperrur
✓ Betri svefngæði
✓ Betri almenna vellíðan

Upphafsgildi
Lyfleysa
Unbroken
Hlaupahraði
19,2 km/klst
19,6 km/klst
20,3 km/klst
Hvíldarpúls
38 slög/mín
37 slög/mín
36 slög/mín
Úthaldsvegalengd
--
23,0 km
26,1 km

Hvað breyttist?

Íþróttafólk sem tók Unbroken bætti hlaupahraða sinn um 5,8% og sýndi jafnframt framfarir í mælingum á úthaldi og endurheimt.

Íþróttafólkið greindi einnig frá minni harðsperrum og betri svefngæðum á æfingatímabilinu.

Hvers vegna þetta skiptir máli

Markmiðið er ekki ein frábær æfing. Það er að geta æft aftur á morgun.

Árangursrík endurheimt styður við þann stöðugleika sem þolþjálfun krefst – og hjálpar íþróttafólki að viðhalda gæðum æfinga og halda áfram að bæta sig.

Minni harðsperrur. Hraðari endurheimt. Allt klárt fyrir það næsta.

Rannsókn á frammistöðu keppnismaraþonhlaupara sem bjuggu sig undir New York-maraþonið. Framkvæmd af dr. Wudeneh Letchamo, vísindamanni við Rutgers University.

Vísindin á bak við lífsnauðsynlegar amínósýrur á frjálsu formi

Árið 2023 birti International Society of Sports Nutrition (ISSN) ítarlega afstöðuyfirlýsingu (Position Stand) um áhrif inntöku lífsnauðsynlegra amínósýra (EAA) sem fæðubótarefnis á þjálfun, vöðvaheilsu og frammistöðu.

Rannsóknirnar draga fram mikilvægt hlutverk lífsnauðsynlegra amínósýra á frjálsu formi við að örva próteinmyndun í vöðvum og styðja vöðvastarfsemi.

„Markmiðið er að sýna hversu miklar rannsóknir liggja að baki inntöku EAA og sýna fram á virkni þeirra við að viðhalda vöðvum og próteinum líkamans.“ — Dr. Arny Ferrando, aðalhöfundur

Helstu atriði úr rannsóknunum:

  • Allar 9 EAA skipta máli – veruleg og viðvarandi örvun próteinmyndunar í vöðvum krefst allra níu lífsnauðsynlegu amínósýranna.
  • Fljótt aðgengilegar – EAA á frjálsu formi auka hratt styrk amínósýra í blóðrásinni og flutning þeirra inn í beinagrindarvöðva.
  • EAA + hreyfing – hreyfing og EAA vinna saman að því að efla anabólíska svörun í vöðvum.
  • Tímasetning skiptir máli – ein rannsókn sýndi um það bil 3× meiri flutning amínósýra þegar EAA var neytt rétt fyrir styrktaræfingu en rétt eftir hana.
  • Heilbrigð öldrun – inntaka EAA hefur verið tengd við bætta vöðvastarfsemi, styrk og líkamlega getu hjá eldra fólki.
  • Orkuskortur – þörf fyrir EAA eykst þegar orkuinntaka er takmörkuð. Þá er sérstaklega mikilvægt að líkaminn hafi nægan aðgang að EAA til að viðhalda vöðvum.

Hlutverk Unbroken

Unbroken veitir frá náttúrunnar hendi allar níu lífsnauðsynlegu amínósýrurnar í vatnsrofnu norsku laxapróteini, þar á meðal amínósýrur á frjálsu formi og stutt peptíð.

Náttúrulegt ensímferli okkar brýtur laxapróteinið niður áður en þú drekkur það. Þannig fæst næring í litlu formi sem krefst lítillar meltingar og er fljótt aðgengileg líkamanum.

Taktu það fyrir hreyfingu, á meðan á henni stendur eða eftir hana – þegar það hentar þér best yfir daginn.

Náttúran fyrst. Vísindin að leiðarljósi. Real Time Recovery.

Rannsókn: Vatnsrofið fiskiprótein og heilbrigð öldrun

Stuðningur við vöðvamassa, styrk og líkamlega getu

Það verður sífellt mikilvægara að viðhalda beinagrindarvöðvum eftir því sem við eldumst. Rannsóknir kanna hvernig vatnsrofin sjávar- og fiskiprótein, með auðaðgengilegum amínósýrum sínum og peptíðum, geti stutt við vöðvaheilsu, líkamssamsetningu og líkamlega getu.

VATNSROFIN SJÁVARPRÓTEIN OG LÍKAMLEG GETA

Slembiröðuð, tvíblind klínísk samanburðarrannsókn var hönnuð til að meta inntöku vatnsrofinna sjávarpróteina hjá 100 fullorðnum, 65 ára og eldri, meðal annars með mælingum á gripstyrk, gönguhraða og líkamlegri getu.

Dale et al. Nutrition and physical performance in older people—effects of marine protein hydrolysates to prevent decline in physical performance: a randomized controlled trial protocol. BMJ Open. 2018;8:e023845.

VATNSROFIÐ FISKIPRÓTEIN OG LÍKAMSSAMSETNING

Klínískar rannsóknir á inntöku vatnsrofins fiskipróteins hafa skoðað áhrif á líkamsþyngd, líkamssamsetningu og efnaskiptasvörun og styðja áframhaldandi rannsóknir á mögulegu hlutverki peptíða úr fiski í næringu og vöðvaheilsu.

Vikøren et al. Supplementation with a fish protein hydrolysate: effects on body weight, body composition, and CCK/GLP-1 secretion. Food & Nutrition Research. 2016;60:29857.

VATNSROFIN FISKIPRÓTEIN OG ÖLDRUN VÖÐVA

Í birtri vísindalegri yfirlitsgrein var skoðað mögulegt hlutverk vatnsrofinna próteina úr fiski í efnaskiptaheilsu, vöðvamassa og vöðvastarfsemi við öldrun, með áherslu á samsetningu amínósýra og peptíða og mögulega þýðingu þeirra fyrir heilbrigða öldrun.

The Potential Role of Fish-Derived Protein Hydrolysates on Metabolic Health, Skeletal Muscle Mass and Function in Ageing. Nutrients. 2020;12(8):2434.

HVERS VEGNA ÞETTA SKIPTIR MÁLI

Aldurstengt vöðvatap getur haft áhrif á styrk, hreyfigetu og sjálfstæði. Auðaðgengilegar amínósýrur og peptíð eru því mikilvægt rannsóknarsvið innan næringaráætlana sem miða að því að styðja vöðvaheilsu alla ævi.

Viðhaltu vöðvunum. Viðhaltu styrknum. Haltu áfram að hreyfa þig lengur.

Ein formúla. Fjórir kostir.

Endurheimt vöðva

Fyrr aftur af stað.
Amínósýrur á frjálsu formi og tví- og þrípeptíð (9 EAA) frásogast hratt og hjálpa til við að gera við vöðva og draga úr harðsperrum.

Liðheilsa

Hreyfðu þig með vellíðan.
Kollagenpeptíð hjálpa til við að styðja heilbrigða liði við daglega hreyfingu og æfingar.

Stuðningur við ónæmiskerfið

Styddu við náttúrulegar varnir líkamans.
Sink og selen stuðla að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins við æfingar, á ferðalögum og í daglegu lífi.

Úthald

Meiri orka. Minni þreyta.
B12-vítamín hjálpar til við að draga úr þreytu og lúa og stuðlar að eðlilegum orkuefnaskiptum.

Sama formúla. Mismunandi form.

Hvort sem þú velur töflur eða stikur eru virku næringarefnin þau sömu. Freyðitöflur eru þægilegar í daglegri notkun, en handhægar stikur í stökum skömmtum henta fyrir æfingar, keppni og ferðalög. Veldu það form sem hentar þínum venjum best.

Staukar

Stikur