MIKILVÆGI VÖÐVAHEILSU ALLA ÆVI
Höfundur: Geir Gunnar Markússon, næringarfræðingur MSc.
Í dag, 29. apríl, er Vöðvaverndardagurinn haldinn í Háskólanum í Reykjavík (HR). Það er mikilvægt að efla vitund um hlutverk vöðvaheilsu í almennu heilbrigði. Lífsgæði okkar skerðast verulega ef vöðvakerfið veikist með aldri.
Eldri kona sem kom til mín í næringar- og heilsuráðgjöf orðaði þetta vel þegar hún sagðist með reglulegri styrktarþjálfun vera „að gæta að gullinu sínu“ – vöðvamassanum. Þetta er hárrétt hjá mínum skjólstæðingi því með hækkandi aldri minnkar vöðvamassi og án markvissra aðgerða tapast styrkur, hreyfigeta og jafnvel sjálfstæði.
Frá um 50 ára aldri tapast að jafnaði 3–8% af vöðvamassa á hverjum áratug ef ekkert er að gert. Tap á styrk er oft enn hraðara en tap á massa. Þetta gerist smám saman–við forðumst áreynslu, lyftum síður þungu og hreyfum okkur minna.
Hvernig vinnum við gegn þessari þróun?
Bestu niðurstöður fást með samspili þriggja lykilþátta í vöðvaheilsu:
-
Styrktarþjálfun a.m.k. 3x í viku
-
Daglegar jafnvægisæfingar (5–10 mínútur)
-
Nægileg próteininntaka
Þegar þessir þættir eru sameinaðir má sjá marktæka aukningu í styrk, líkamlegri færni og vöðvamassa.
Prótein er ekki bara magn – heldur gæði og aðgengi
Prótein gegnir lykilhlutverki í viðhaldi og uppbyggingu vöðva. Hins vegar er ekki nóg að horfa eingöngu á magn próteins – gæði og frásog próteinanna skipta sérstaklega máli með hækkandi aldri.
Með aldri minnkar næmi vöðva fyrir próteinum, svokölluð anabolic resistance. Það þýðir að líkaminn þarf:
-
hærri styrk af lífsnauðsynlegum amínósýrum
-
hraðara framboð amínósýranna í blóði
-
nákvæmari tímasetningu
Hér kemur munurinn á hefðbundnum próteingjöfum og markvissari lausnum skýrt fram.
Vatnsrofið laxaprótein – Hröð vöðvanæring
Mysuprótein hefur lengi verið notað sem próteinviðbót í íþróttaiðkun, við vannæringu eða til almennrar heilsueflingar. En mysuprótein gæti verið að tapa hylli sinni fyrir fiskipróteini og þá sérstaklega laxapróteini.
Unbroken er unnið úr laxi þar sem búið er að þróa aðferð til að brjóta niður laxapróteinin í sínar minnstu einingar sem einstakar amínósýrur og dí- og tripeptíð (tvær og þrjár amínósýrur) með vatnsrofi. Með vatnsrofinu eru allar níu lífsnauðsynlegu amínósýrurnar aðgengilegar á niðurbrotnu formi en þetta aðgengi skiptir höfuðmáli þegar kemur að vöðvaheilsu.
Hraði og aðgengi skipta máli fyrir vöðvauppbyggingu
Til þess að hámarka vöðvauppbyggingu þarf nægilegt magn lífsnauðsynlegra amínósýra að berast hratt til vöðva. Hefðbundin prótein (t.d. kjöt, egg, mjólk eða heil prótein) þurfa fyrst meltingu, sem hægir á frásogi.
Lausnir eins og Unbroken, sem innihalda allar 9 lífsnauðsynlegu amínósýrurnar í frjálsu formi, hafa hér ákveðinn lífeðlisfræðilegan kost:
-
Amínósýrurnar eru tilbúnar til upptöku án frekari meltingar
-
Hraðari hækkun á amínósýrustyrk í blóði
-
Skilvirkari örvun á vöðvauppbyggingu
Þetta er sérstaklega mikilvægt hjá eldri einstaklingum þar sem:
-
Melting og upptaka er oft hægari
-
Svar vöðva við próteini er minnkað
Í þessu samhengi getur hraðari og markvissari amínósýruinntaka hjálpað til við að yfirstíga anabolic resistance og styðja þannig betur við vöðvaviðhald og uppbyggingu.

Án vöðvaheilsu – engin heilsa!
Við hættum ekki að hreyfa okkur vegna þess að við eldumst— við eldumst vegna þess að við hættum að hreyfa okkur.
Að viðhalda vöðvaheilsu er fjárfesting í sjálfstæði, lífsgæðum og virkni til framtíðar. Með réttri þjálfun og markvissri næringu getum við hægt á öldrunarferlinu—og jafnvel snúið því við að hluta.